Sigurborg er fæddur og uppalinn kjalnesingur, kláraði grunnskólapróf í Klébergsskóla og var 2 ár í félagsfræði við menntaskólanum við Sund en er núna í Iðnskólanum í Reykjavík á hönnunarbraut.
|
|
|
 |
|
Monday, August 23, 2004
Jæja, fólk sem bloggar ekki getur ekki haldið uppi bloggsíðu eða hvað?
Ég er alls ekki nógu dugleg að tjá mig. Það er bara alltaf svo mikið að gera hjá manni að það er aldrei tími! Annars eru ég og Kjartan vonandi að fara að setja inn einhverjar myndir, af herberginu og utanlandsferðinni og svona. Það var rosalega gaman að fara út en ekki alveg jafn gaman að koma heim. Seinkun á flugi, óætur matur og týnd ferðataska gerðu heimkomuna jafn niðurdrepandi og hún var. En það var gott að komast heim, gamla góða rúmið klikkar aldrei.
Svo er Kolla systir að koma á fimmtudaginn og Guðrún Birna var að koma í dag þannig að það er nóg að gera í Skrýplalandi. Núna er Barbapabba lagið í botni og litlir fætur hlaupa um alla hæðina. Ótrúlegt hvað Barbapabbi getur gert mikið fjör!
Annars var ég að byrja að lesa bók sem að ég held að væri holl lesning fyrir alla þá sem ég þekki. Hún heitir Celestine handritið og er hreint út sagt tær snilld. Ég er reyndar ekki búin með hana but so far so good.
Ætli ég þurfi ekki að fara spila Línu Langsokk í 50. skipti í kvöld fyrir lítil eyru sem þreytast aldrei á því að hlusta á sama lagið aftur og aftur og aftur og aftur...
Posted at 10:24 pm by Sigurborg_Osk
Permalink
Thursday, July 15, 2004
Jæja, er langt síðan sumir blogguðu eða hvað?
Það er svo margt búið að gerast síðan síðast var bloggað að ég veit ekki einu sinni hvort ég man það allt. Allavæna þá vorum ég og Gulli norður á Akureyri fyrstu helgina í júlí og áttum von á heljarinnar tjaldparty en eitthvað var fámennt í partýinu en það skipti engu máli því ég skemmti mér alveg konunglega. Kolla systir kom líka frá Hallormsstað og kíkti á gleðiskapinn, Sjibbí! Annars veit ég ekki hvernig geðheilsan helst þarna hjá Austfjörðunum, á svona afskekktum stað.
Svo er ég líka að klára að leggja parket og svona þannig að herbergið verður bráðum tilbúið. Vantar samt nafn á það, tillögur óskast! Svo koma myndir á síðuna, fyrir og eftir breytingar. Spennandi!!!
En núna ætla ég að fara að éta pizzu, nammi namm.(Skvo grænmetispizzu;))
Scotty, beam me up.
(Ohh geðveikt lummó endir, allt Kjartani að kenna!)
Posted at 08:05 pm by Sigurborg_Osk
Permalink
Thursday, June 24, 2004
Meira meira dó...meira dó...meira fjörefni.
Jæja... No more dramaqueen for me. Núna á að skrifa eitthvað skemmtilegt. Vitið þið hver fann uppá sturtunni? Það var hann Jesú kallinn, hann flaut nebbla alltaf á vatninu í baðinu! Annars er ég ekki nú alveg nógu góður bloggari, svolítið svona óreglulegt hjá mér. En batnandi manneskju er best að lifa. Vonum það allavæna. Ég hef svo margt til að hlakka til, og vera bara almennt ánægð með. Ég er aðstoðarverkstjóri í frábærri vinnu þar sem er vægast sagt mjög góður vinnumórall og bara mjög skemmtilegt í vinnunni. Svo er ég að fara norður næstu helgi með kærasta mínum og vinum og það verður skvo BRJÁLAÐ fjör takk fyrir, sama hvernig veðrið verður! Svo ætla ég að fara að gera systur minni lífið leitt í sumar og fara að heimsækja hana;) Veit ekki alveg hvenær það verður en til að setja smá rjóma á þetta allt er ég að fara til Króatíu 5.Ágúst með kærastanum. Ohh, what a perfect life! Svo er ég líka að stækka herbergið mitt, mála og leggja parket. Það er mikið að gera en ég er bara mjög ánægð með það. Lífið er kannski ekki alltaf dans á rósum en eftir að hafa verið á Sólheimum í Grímsnesi sé ég það að við erum flest alltof vanþakklát fyrir lífið okkar. Ég hef það svo gott að ég geri mér bara engan veginn grein fyrir því.
Veistu hvað ég held að væri soldið skemmtilegt? Gera eins og í myndinni Pay it forward nema hafa það bara eitt stórt knús á einhverjum algjörlega ókunnugum. Gaman að sjá hvað kæmi út úr því. Kannski að ég geri það bara næst þegar ég fer í bæinn, samt það gæti einhver haldið að ég væri bara að ráðast á hann! Þá fengi ég kannski högg eða eitthvað álíka til baka, veit ekki...
Annars eru kosningar framundan og verð ég ekki að skrifa eitthvað um þær? Ég segji bara áfram Óli, gott hjá þér að nota neitunarvaldið, þú hefur það og átt að nota það. Við þjóðin erum skvo engir hálfvitar og getum alveg kosið, annað en hann Dabbi kóngur heldur! Annars ætlaði Dorrit að setja grasagarð á Bessastaði, veit hvort hann myndi fjúka í burtu en hey! Hún er greinilega með jafn bjartsýnt hjarta og flestir Íslendingar hafa, sérstaklega þegar kemur að Íslandi.
Stórt knús frá Siggu litlu á Kjaló!
Posted at 09:08 pm by Sigurborg_Osk
Permalink
Tuesday, June 15, 2004
Mig langar í útileigu. Fara bara eitthvert útí náttúruna og tjalda á einhverri mosbreiðu lengst uppí dal, umkringd birkitrjám og fuglasöng. Anda að mér móðir náttúru í hverjum andardrætti, þá fyrst finn ég hvað ég er lifandi, og móðir jörð líka. Ég gleymi því svo oft að plánetan sem ég bý á er lifandi. Ég vil bara fá fleiri og betri vegi um allt land, göng í gegnum öll fjöll og sem flottasta bílinn til að ferðast á.
Svo á Hellu býr fuglapar, tveir Tjaldar með ungana sína. Ég bruna í gegn á flotta og þægilega bílnum mínum á 100 -110km hraða og keyri einfaldlega á annan Tjaldin, helv.. núna þarf ég að þrífa bílinn hugsa ég og held áfram. Eftir situr annar Tjaldurinn með ungana, það er nú svo sem allt í lagi, þeir ættu að lifa það af. En málið er bara það að Tjaldurinn velur sér maka fyrir lífstíð og ef makinn fellur frá verður hann einn það sem eftir er. Svona geta fuglarnir verið dyntóttir eins og við, velja sér maka fyrir lífstíð hvaða bull er nú það?
Posted at 12:09 pm by Sigurborg_Osk
Permalink
Monday, May 31, 2004
Mér líður illa í hjartanu eftir að hafa lesið fréttirnar í dag. Hvaðan kemur allt þetta ofbeldi? Ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að bregðast við eftir að hafa lesið um morðin á börnunum tveimur í Bandaríkjunum, hvað þá í vesturbænum! Stundum finnst mér ég vera orðin algjörlega dofin yfir öllu ofbeldinu í fréttunum og læt mig engu skipta öll morðin og pyntingarnar sem eru að gerast út um allan heim. En ég má ekki verða þannig. Morð eru alltaf jafn hræðileg, sama hvort það er fjölskyldan mín eða einhver Íraki. Það hafa allir sama réttinn til að lifa, öll líf eru jafn heilög. Ég má ekki gleyma því að við lifum öll á sömu plánetunni og ættum þess vegna öll að standa hvort með öðru og elska hvort annað. Enginn þjóð er merkilegri en önnur þjóð, engin fjölskylda merkilegri en önnur og ekkert líf merkilegra en annað. Við erum öll jafn merkileg. Það að elska fjölskylduna sína er mun auðveldara en að elska óvin sinn, þess vegna er ég mun betri manneskja ef ég get elskað þá sem ég hata. Stundum þegar ég er í bíó eða niðrí bæ stend ég mig að því að horfa illilega á einhverja manneskju bara vegna þess að eitthvað sem hún gerði fór í pirrurnar á mér eða hvernig hún leit út. En þá stoppa ég mig af, "Sigurborg þú þekkir þetta fólk ekki neitt. Það er ekkert ómerkilegra en þú". Þess vegna hugsa ég stundum núna að ég elski alla í kringum mig, feita og ljóta. Pirrandi og andfúla. Bara allan pakkann, þá líður manni best!
Það er ágætt að hlusta á lagið hans Lennons annað slagið og hugsa um hvað hann var að reyna að segja okkur. Einfalt, allt sem þú þarft er ást.
Elska ykkur öll.
Posted at 03:09 pm by Sigurborg_Osk
Permalink
Friday, May 21, 2004
Einhvern tíman er allt fyrst!
Jæja, Sigurborg bara loksins orðin maður með mönnum. Komin með eigið blogg, sem hún kann nú reyndar ekki neitt á! Á þessari eiga eftir að birtast ansi róttækar skoðanar og þær eiga eflaust eftir að fara fyrir brjóstið á mörgum en það er nú ætlunin. Því sterkari sem skoðanirnar eru því meiri líkur eru á því að þær eigi eftir að hafa áhrif. En það sem ég á eftir að skrifa er skvo engin algildur sannleikur, meira bara svona ákveðin hlið á málunum! Vona bara að þið hafið gaman af því að lesa þetta og að þið takið mig ekki mjög alvarlega, ég held að það sé ekkert sniðugt;)
Posted at 06:30 am by Sigurborg_Osk
Permalink
|
|
|